
Ég fæ hugmyndir. Og elska að koma þeim í framkvæmd.
Til dæmis þessa heimasíðu.
Ég keypti sveinbj.org af því að mér fannst lénið of gott til að sleppa. Svo þurfti ég auðvitað að finna eitthvað til að setja á það.
Sem er kannski ágæt lýsing á mér. Ég hef gaman af góðum hugmyndum - en enn meira af því að gera eitthvað úr þeim.
Í gegnum tíðina hef ég unnið við markaðsmál, stefnumótun, vöruþróun og viðskiptaþróun á ýmsum stöðum; í fjölmiðlum, tölvuleikjum, auglýsingum, fjarskiptum, hönnun og fjártækni. Ég kann best við mig þar sem þarf að sjá tækifærin, finna stefnuna og koma hlutunum í framkvæmd.
SJÁ MEIRA →

LÍFIÐ
Utan vinnu.
Ég elska að ferðast og kynnast nýjum stöðum. Ég sæki mikið í útivist og finnst fátt betra en að komast út og hreyfa mig.
Ég les mikið, hlusta mikið á tónlist og hef almennt gaman af menningu og því sem fólk er að skapa.
Ég er yfirleitt alltaf með næsta ferðalag í hausnum.